Fjölmargir notendur netbanka verða um áramótin rukkaðir fyrir það eitt að skrá sig inn í netbankann, en þá verður notkun svokallaðra auðkennislykla hætt. Viðskiptavinir Nova og Vodfone, sem skrá sig inn í netbanka Íslandsbanka eða Arion banka með rafrænum skilríkjum, munu þannig þurfa að greiða 14 til 15 krónur fyrir hverja innskráningu.
Fram hefur komið í fjölmiðlum að erlendir ísmolar séu seldir í íslenskum verslunum á mun lægra verði en þeir íslensku. Jafnframt hefur verið gagnrýnt að upprunalands á erlendum ísmolum sé ekki sérstaklega tilgreint á umbúðum. Guðni Ágústsson, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, skoraði á mig „að fara yfir þessi mál og krefjast vottunar og ærlegrar merkingar á upprunalandinu.“
Á þessum tíma árs er algengt að bílaeigendur fari að huga að vetrarbúnaði bíla sinna. Þegar kemur að vali á vetrardekkjum standa bíleigendum nokkrir kostir til boða. Hægt er t.d. að velja á milli hefðbundinna nagladekkja eða heilsárs- harðkorna- og harðskeljadekkja.
Á þingi Neytendasamtakanna um liðna helgi urðu formannsskipti hjá Neytendasamtökunum. Jóhannes Gunnarsson lét af störfum eftir 34 ára starf í þágu samtakanna. Jóhannes tók fyrst við sem varaformaður samtakanna árið 1982, varð formaður þeirra tveimur árum síðar og gegndi því embætti samfellt í 32 ár, að undanskildum tveimur árum þegar hann var framkvæmdastjóri samtakanna.
Leigjandi leitaði til nefndarinnar vegna ágreinings um tryggingarfé. Hann hafði haft íbúðina á leigu í sextán mánuði en við lok leigutíma tók leigjandinn kostnað við málun íbúðarinnar, þrif og leigu vegna fjögurra daga sem það tók að mála íbúðina.
Leigjandi hélt því fram að leigusamningur hefði verið ólöglegur. Þannig hafi verið tekið fram í samningnum að honum mætti ekki þinglýsa, en þar með gat leigjandi ekki sótt um húsaleigubætur, og að leigan yrði ekki gefin upp til skatts.